Kynning á starfsemi Fjármálaráðs
(1608013)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
10.02.2017 | 26. fundur fjárlaganefndar | Kynning á starfsemi Fjármálaráðs Til fundar við nefndina komu aðalmenn og varamenn í fjármálaráði, þau Gunnar Haraldsson, Axel Hall, Ásgeir Brynjar Torfason, Arna Ólafsson, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Þóra Helgadóttir. Þau lögðu fram álitsgerð fjármálaráðs um tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir árin 2017-2022 ásamt kynningarefni og bréfi dags. 9. febrúar 2017. Gestirnir kynntu álitsgerðina og svöruðu spurningum nefndarmanna um hana. |
17.08.2016 | 74. fundur fjárlaganefndar | Fjármálaráð Til fundarins komu frá fjármálaráði Gunnar Haraldsson, Ásgeir Brynjar Torfason og Axel Hall. Fjármálaráð var skipað síðastliðið vor og kynntu gestirnir skipulag þess og fleira í væntanlegri starfsemi og svöruðu spurningum nefndarmanna. |